logo-for-printing

22. mars 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 02/2020 dags 19. febrúar sl. þar sem að engin meginvaxtaákvörðun hefur verið af hálfu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands síðan þá. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði til 7 daga, er því óbreyttur 1,50%.

Dráttarvextir haldast þar af leiðandi óbreyttir og verða áfram 8,50% fyrir tímabilið 1. - 30. apríl 2021.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána 3,30%
• Vextir verðtryggðra útlána 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,20%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 3/2021

 

Til baka