logo-for-printing

17. febrúar 2021

Fundargerð peningastefnunefndar frá 1. og 2. febrúar 2021

Mynd af peningastefnunefnd og ritara, tekin í tengslum við nýlegan fund nefndarinnar. Frá vinstri eru talin Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri, Gylfi Zoëga prófessor, Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, formaður, Karen Á. Vignisdóttir, ritari nefndarinnar, Katrín Ólafsdóttir dósent og Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri.

Í samræmi við starfsreglur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands er hér birt nýjasta fundargerð nefndarinnar, en fundargerð er birt tveimur vikum eftir að ákvörðun nefndarinnar er kynnt.

Hér birtist því fundargerð fundar peningastefnunefndar 1.-2. febrúar 2021, en á honum ræddi nefndin efnahagsþróunina, þróun á fjármálamörkuðum, ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum og kynningu þeirra ákvarðana 3. febrúar.

Sjá hér: Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands 1.- 2. febrúar 2021 (100. fundur). Birt 17. febrúar 2021

Sjá hér svæði fyrir fundargerðir peningastefnunefndar og fleiri upplýsingar um nefndina: Peningastefnunefnd
 
Til baka