logo-for-printing

02. febrúar 2021

Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitið) hefur birt lista á vef Seðlabankans yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa. Er það gert í samræmi við 10. gr. reglugerðar nr. 1420/2020, m.t.t. aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka en samkvæmt reglugerðinni skal Fjármálaeftirlitið halda lista yfir þau starfsheiti hér á landi sem teljast til háttsettra opinberra starfa og birta opinberlega á vefsvæði bankans.

Á listanum koma fram starfsheiti og nafn stofnunar, samtaka, fyrirtækis eða stjórnmálaflokks, eftir því sem við á. Listinn byggir á ákvæðum reglugerðarinnar og á upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og stjórnmálaflokkum sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi 1. febrúar 2021, sbr. 11. gr. reglugerðarinnar.

Sjá nánar: Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa.
Til baka