logo-for-printing

08. janúar 2021

Frumtak Ventures ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Frumtak Ventures ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 6. janúar 2021, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.
Til baka