logo-for-printing

18. desember 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2020 dagsett 19. nóvember sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 8,50% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2021.

Vextir af peningakröfum sem Seðlabanki Íslands tilkynnir lækka og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána 3,30% - (lækka úr 3,50%)
• Vextir verðtryggðra útlána 1,90% - (lækka úr 2,00%)
• Vextir af skaðabótakröfum 2,20% - (lækka úr 2,34%)

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2020

Til baka