logo-for-printing

14. desember 2020

Ný gögn um íslenska banka í evrópskum samanburði

Bygging Seðlabanka Íslands

 

 

Evrópska bankaeftirlitsstofnunin (European Banking Authority, EBA) hefur birt upplýsingar um rekstur og efnahag 129 banka á Evrópska efnahagssvæðinu og 6 breskra banka.

Birtar eru upplýsingar um hvern og einn banka. Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn eru með í þessum samanburði eins og síðustu ár.

Um er að ræða upplýsingar á borð við eigið fé, eiginfjárhlutfall, vogunarhlutfall, vanskilahlutfall, kostnaðarhlutfall o.fl. Vegna óvenjulegra aðstæðna á þessu ári var birtingu upplýsinga skipt í tvo hluta, ólíkt framkvæmd síðustu ára. Þannig voru gögn vegna rekstrar síðari hluta síðasta árs, 3. og 4. ársfjórðungs 2019, sem sýna stöðu bankanna áður en heimsfaraldurinn skall á birt sl. sumar. Gögn vegna rekstrar fyrri hluta þessa árs, 1. og 2. ársfjórðungs 2020, sem sýna stöðu bankanna um mitt ár þegar fyrsta bylgja faraldursins var í rénun voru birt nú. Upplýsingarnar eru aðgengilegar á vefslóðinni: https://eba.europa.eu/risk-analysis-and-data/eu-wide-transparency-exercise
 
Tilgangurinn með birtingu þessara upplýsinga á einum stað og á samanburðarhæfu formi er að styðja við gagnsæi og aðhald á evrópskum bankamarkaði.

Á vefsíðu EBA má finna handhæga leið til að bera saman upplýsingar um einstaka banka og skoða gögnin með myndrænum hætti.
Vefslóðin með gögnum síðari hluta 2019 og stöðu í upphafi árs er: https://tools.eba.europa.eu/interactive-tools/2020/powerbi/tr20_visualisation_page.html, en gögn fyrri hluta 2020 og stöðu um mitt ár má skoða hér: https://tools.eba.europa.eu/interactive-tools/2020/powerbi/tr20_2_visualisation_page.html


Til baka