logo-for-printing

07. desember 2020

GAMMA Capital Management hf. fær starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti GAMMA Capital Management hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða sbr. lög nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 2. desember 2020. Í leyfinu felst að félaginu er heimilt að reka sérhæfða sjóði sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Félagið hefur einnig starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Til baka