logo-for-printing

26. nóvember 2020

ÍV sjóðir hf. fá starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Harpan og bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti ÍV sjóðum hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða hinn 18. nóvember 2020, sbr. lög nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í leyfinu felst að félaginu er heimilt að reka sérhæfða sjóði sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Félagið hefur einnig starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Til baka