logo-for-printing

26. nóvember 2020

Íslandssjóðir hf. fá starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti Íslandssjóðum hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða sbr. lög nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 24. nóvember 2020. Í leyfinu felst að félaginu er heimilt að reka sérhæfða sjóði sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Félagið hefur einnig starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Til baka