logo-for-printing

21. október 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 09/2020 dags 22. september sl. þar sem peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum óbreyttum við síðustu vaxtaákvörðun sína dags 7. október sl. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,75%.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 8,75% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2020.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2020:

• Vextir óverðtryggðra útlána 3,50%
• Vextir verðtryggðra útlána 1,95%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,34%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2020

Til baka