logo-for-printing

22. september 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 08/2020 dagsett 14. ágúst sl. þar sem að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum óbreyttum við síðustu meginvaxtaákvörðun sína dags 26. ágúst 2020 og er því grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, óbreyttur 1,75%.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 8,75% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2020.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2020:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða óbreyttir 3,50%
• Vextir verðtryggðra útlána lækka og verða 1,95%
• Vextir af skaðabótakröfum verða óbreyttir 2,34%

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2020


Til baka