logo-for-printing

21. júlí 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 6/2020 dagsett 16. júní sl. þar sem að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ekki tilkynnt neinar breytingar á meginvöxtum síðan þá. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,75%.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 8,75% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2020.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2020:

• Vextir óverðtryggðra útlána 3,50%
• Vextir verðtryggðra útlána 2,00%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,34%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2020

Til baka