logo-for-printing

15. júlí 2020

Brot Almenna lífeyrissjóðsins gegn 37. gr. laga nr. 129/1997

Höfðatorg

Í kjölfar fyrirspurnar frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands bárust upplýsingar frá Almenna lífeyrissjóðnum 22. maí 2020 þess efnis að heildareign lífeyrissjóðsins í verðbréfasjóði hefði farið yfir lögbundið hámark fjárfestingarheimilda, sbr. 6. mgr. 36. gr. c. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Fjármálaeftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að eign lífeyrissjóðsins hafi farið yfir lögbundið hámark laganna án þess að Fjármálaeftirlitinu hafi verið tilkynnt um brotið í samræmi við 37. gr. laga nr. 129/1997. Þá var það einnig niðurstaða Fjármálaeftirlitsins að lífeyrissjóðurinn hafi ekki þegar gripið til ráðstafana til að koma sér undir lögbundið hámark líkt og 37. gr. laganna gerir kröfu til.

Sjá nánar: Brot Almenna lífeyrissjóðsins gegn 37. gr. laga nr. 129/1997 


Til baka