logo-for-printing

03. júlí 2020

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis

Bygging Seðlabanka Íslands
Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2020 er nú aðgengileg hér á vef bankans. Viðamikið ítarefni fylgir skýrslunni.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið rædd í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi, síðast 20. maí 2020, og fjóra aukafundi. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2020.

Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis
Til baka