logo-for-printing

30. mars 2020

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns

Höfðatorg
Hér með tilkynnist um yfirfærslu líftryggingastofns frá Police Mutual Assurance Society Limited til Royal London Mutual Insurance Society Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 20. mars 2020 frá breska fjármálaeftirlitinu, Prudential Regulation Authority.
 
Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
 
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
 
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Til baka