logo-for-printing

20. mars 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 02/2019 dagsett 21. febrúar sl. þar sem að grunnar dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hefur lækkað frá þeim tíma en peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að lækka meginvexti um 0,50% við meginvaxtaákvörðun sína hinn 11. mars sl. og svo aftur um 0,50% viku seinna eða hinn 18. mars sl. Grunnur dráttarvaxta hefur því lækkað um samtals 1,00% frá síðustu vaxtatilkynningu.

Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 1,00% og verða 9,50% fyrir tímabilið 1. - 30. apríl 2020.

Aðrir vextir af peningakröfum sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2020:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,90%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,90%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 3,27%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 3/2020

Til baka