logo-for-printing

20. febrúar 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2020

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 01/2019 dagsett 21. janúar sl. en grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hefur lækkað þar sem að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði meginvexti um 0,25% við meginvaxtaákvörðun sína hinn 5. febrúar sl.

Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,25% og verða 10,50% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2020.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast einnig frá síðustu vaxtatilkynningu og verða því sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2020:

  • Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,95% (voru 5,05%)
  • Vextir verðtryggðra útlána verða óbreyttir 2,90%
  • Vextir af skaðabótakröfum verða 3,30% (voru 3,37%)

Sjá nánar hér: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. nr. 02 2020


Til baka