logo-for-printing

22. janúar 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

 Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta, þ.e. vextir af lánum gegn veði í 7 daga, hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 12/2019 dags 18. desember sl.
Dráttarvextir eru því óbreyttir og verða áfram 10,75% fyrir tímabilið 1. - 29. febrúar 2020.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir hafa heldur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 29. febrúar 2020:

• Vextir óverðtryggðra 5,05%
• Vextir verðtryggðra 2,90%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,37%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2020

Til baka