logo-for-printing

10. janúar 2020

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals

Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið
 Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands.

Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Styrkfjárhæðin nemur fjórum milljónum króna og verður henni úthlutað í apríl eða maí 2020. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.

Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands eigi síðar en 13. mars 2020.

Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð eru aðgengileg hér: Menningarstyrkur og í afgreiðslu bankans á Kalkofnsvegi 1.

Til baka