logo-for-printing

22. júlí 2019

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2019

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 06/2019 dagsett 20. júní sl. þar sem að grunnar dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hefur lækkað úr 4,75% í 4,50% við megninvaxtalækkunina í síðasta mánuði er nam 0,25%.
Dráttarvextir breytist því sem þessari lækkun nemur og verða 11,50% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2019.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir lækka einnig og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2019:

• Vextir óverðtryggðra útlána lækka í 5,40% - (voru 5,60%)
• Vextir verðtryggðra útlána lækka í 3,19% - (voru 3,25%)
• Vextir af skaðabótakröfum lækka í 3,60% - (voru 3,73%)

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2019

 


Til baka