logo-for-printing

20. júní 2019

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2019

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 05/2019 dagsett 22. maí sl. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 4,75%.
Dráttarvextir verða því óbreyttir 11,75% fyrir tímabilið 1. - 31. júlí 2019.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir lækka og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2019:

• Vextir óverðtryggðra útlána lækka í 5,60% - (voru 6,00%)
• Vextir verðtryggðra útlána lækka í 3,25% - (voru 3,55%)
• Vextir af skaðabótakröfum lækka í 3,73% - (voru 4,00%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2019


Til baka