logo-for-printing

22. maí 2019

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 5/2019

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 04/2019 dagsett 17. apríl sl. þar sem að meginvextir lækkuðu um 0,50% hinn 22. maí 2019 sbr. tilkynningu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, lækkaði sem nam meginvaxtalækkuninni um 0,50% úr 5,25% niður í 4,75%. Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,50% og fara úr 12,25% niður í 11,75% fyrir tímabilið 1. - 30. júní 2019.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2019:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 6,00%
  • Vextir verðtryggðra útlána 3,55%
  • Vextir af skaðabótakröfum 4,00%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 5/2019


Til baka