logo-for-printing

18. desember 2018

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2018

Bygging Seðlabanka Íslands

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2018 dags 19. nóvember sl. þar sem að engin breyting hefur orðið á meginvöxtum (stýrivöxtum) síðan þá, en peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum óbreyttum við síðustu vaxtaákvörðun sína hinn 12. desember sl. samanber yfirlýsingu þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði í verðbréfum, er því óbreyttur 5,25%.

Dráttarvextir eru þar að leiðandi einnig óbreyttir og verða því áfram 12,25% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2019.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2019:
• Vextir óverðtryggðra útlána 6,00%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,55% - (voru 3,65%)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,00%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2018

Til baka