logo-for-printing

18. desember 2017

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2017

Bygging Seðlabanka Íslands

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2017 dags 16. nóvember sl. þar sem að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum (stýrivöxtum) óbreyttum við síðustu vaxtaákvörðun sína hinn 13. desember sl. samanber yfirlýsingu þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði, helst því óbreyttur 5,00%. Dráttarvextir haldast af þeim sökum einnig óbreyttir og verða því áfram 12,00% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2018. 

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2018:
• Vextir óverðtryggðra útlána 5,60%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,73%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2017

Til baka