logo-for-printing

17. nóvember 2017

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2017

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 10/2017 dags 18. október sl. þar sem peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum (stýrivöxtum) óbreyttum við síðustu vaxtaákvörðun sína hinn 15. nóvember sl. samanber yfirlýsingu þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði, helst því óbreyttur 5,00%.
Dráttarvextir haldast af þeim sökum óbreyttir og verða því áfram 12,00% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2017.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2017:
• Vextir óverðtryggðra útlána 5,60%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,73%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2017

Til baka