logo-for-printing

19. júní 2017

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2017

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta lækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans Íslands hinn 14. júní sl. sbr. tilkynningu peningastefnunefndar þar um sama dag.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,25 prósentur frá og með 1. júlí nk. og verða 12,25% fyrir tímabilið 1. - 31. júlí 2017.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast eins og fram kemur hér fyrir neðan og verða því sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2017;

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,10% - (lækka úr 6,35%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,65% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,07% - (lækka úr 4,23%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2017

 

 

Til baka