logo-for-printing

06. júní 2017

Vextir á innstæðubréfum Seðlabanka Íslands

Bygging Seðlabanka Íslands

Með vísan til 2. mgr. 10. gr. laga nr. 37/2016 um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum skulu ársvextir af innstæðubréfum sem tilgreind eru í lögunum endurskoðaðir af Seðlabanka Íslands á vaxtagjalddaga.

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að frá og með vaxtagjalddaga 2. júní 2017 skuli ársvextir sem innstæðubréfin bera vera óbreyttir, þ.e. 0,5%.

Nafnvextir innstæðubréfsins (ISIN: IS0000027068) eru greiddir eftir á einu sinni á ári. Vexti af innstæðubréfunum skal færa á reikninga háða sérstökum takmörkunum, sbr. 4. mgr. 10 gr. laga nr. 37/2016.

 

Frétt nr. 18/2017
6. júní 2017

Til baka