logo-for-printing

06. janúar 2017

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals

Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið

Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands.

Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Styrkfjárhæðin nemur þremur milljónum króna og verður úthlutað í apríl eða maí 2017. Hugsanlegt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.

Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands eigi síðar en 28. febrúar 2017.

Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð má finna hér: Menningarstyrkur

Nánari upplýsingar veitir Jón Þ. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra í síma 569 9600.

Til baka