logo-for-printing

13. maí 2015

Úthlutun styrkja úr menningarsjóði sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals

Frá vinstri: Margrét Norðdahl, Hildur Traustadóttir, Jóhannes Nordal og Rannveig Anna Jónsdóttir

Í dag fór fram fjórða úthlutun styrkja úr menningarsjóði sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals, fyrrverandi seðlabankastjóra. Vorið 2011 var ákveðið að stofna til þessa sjóðs í tilefni af 50 ára afmæli Seðlabanka Íslands og var fyrsta úthlutun ári síðar. Styrknum er ætlað að styðja við lofsverða viðleitni einstaklinga sem miðar að því að varðveita þá menningararfleið sem núverandi kynslóð býr að.

Alls bárust 36 styrkumsóknir í ár og voru tveir styrkir veittir. Rannveig Anna Jónsdóttir hlaut einnar milljónar króna styrk til verkefnisins Varðveisla og öflun á upplýsingum um skrif kvenna í íslenskri menningarsögu og Níels Hafstein hlaut einnar milljónar króna styrk til verkefnisins Sýnisbók safneignar.

Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri. Á myndinni eru frá vinstri: Margrét Norðdahl, sem veitt viðtöku styrk fyrir hönd Níelsar Hafstein, Hildur Traustadóttir, formaður úthlutunarnefndar, Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, og Rannveig Anna Jónsdóttir, annar styrkþega.

Rannveig Anna Jónsdóttir sótti um styrk í sjóðinn til að afla upplýsinga um kvenrithöfunda Íslands og útgefin verk þeirra. Hún ætlar að gera þessar upplýsingar aðgengilegar á stafrænu formi á heimasíðu Konubókastofu og einnig gefa þær út á bókarformi. Þá stendur til að þýða á ensku og þýsku upplýsingar um þessa höfunda á styttra formi til að auka sýnileika íslenskra kvenrithöfunda í alþjóðlega bókmenntaheiminum.

Níels Hafstein sótti um styrk í sjóðinn fyrir Safnasafnið til að gefa út sýnisbók um verk eftir 100 listamenn og verður hver þeirra kynntur á einni blaðsíðu með texta og ljósmynd. Bókin verður í senn kynningarrit og gagnlegt hjálpartæki við undirbúning fyrir rannsóknir og sýningar sem sýnir þróun íslenskrar alþýðulistar í 170 ár. Safnasafnið varðveitir um 5500 listaverk og eru þau eftir flesta helstu alþýðulistamenn þjóðarinnar og þau elstu eftir Hjálmar Jónsson frá Bólu og Sölva Helgason.

Formaður úthlutunarnefndar er Hildur Traustadóttir en aðrir í nefndinni eru Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, og Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Hildur Traustadóttir flutti ávarp við athöfnina í dag og afhenti styrkina. Við það tækifæri sagði hún að fjölmargar áhugaverðar umsóknir hefðu borist sjóðnum í ár og að fjölbreytileiki þeirra væri til marks um þá hugmyndaauðgi og sköpunargleði sem ríkir í menningarlífi Íslendinga. Það væri ánægjulegt til þess að vita að þau verðmæti sem gengnar kynslóðir hafa skapað væru umsækjendum innblástur til nútímalegrar varðveislu þeirra því það er ekki nóg að erfa heldur þurfum við að geta varðveitt og notið arfsins sem samfélagslegra lífsgæða.

Til baka