logo-for-printing

21. apríl 2015

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2015

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu dags 19. mars sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 12,25% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast ennfremur ekkert og verða því áfram fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2015 sem hér segir;
• Vextir óverðtryggðra útlána 6,00%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 4,00%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2015

Til baka