logo-for-printing

15. október 2013

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 4. september 2013 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum
Alls bárust 81 tilboð að fjárhæð 24,9 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 21,4 milljónir evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 210 kr. fyrir hverja evru.

 Lykiltölur

Alls 

Ríkisverðbréf  Fjárfestingarleið 
Fjöldi tilboða

 81

    20

    61

    Heildarupphæð EUR

    24,9 m

   4,2 m 

 20,7 m

Tekin tilboð EUR

 21,4 m

 3,5 m

 17,9 m



Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 0,7 ma.kr. að nafnvirði. Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 4,5 ma.kr. í útboðunum tveimur.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur
Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 227 kr. fyrir hverja evru. Alls bárust 34 tilboð að fjárhæð 14,6 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 4,9 ma.kr. tekið.

Lykiltölur      Alls
Fjöldi tilboða     34
Heildarupphæð ma. kr.

 14,6

Tekin tilboð ma.kr.

 4,9



Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin 3. desember, 4. febrúar og 18. mars 2014.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Nr. 34/2013
15. október 2013

Til baka