logo-for-printing

30. september 2013

Seðlabanki Kína og Seðlabanki Íslands endurnýja tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamning

Seðlabanki Kína og Seðlabanki Íslands hafa endurnýjað gjaldmiðlaskiptasamning sín á milli. Upphaflegi skiptasamningurinn var undirritaður 9. júní 2010 og var tilgangur hans að efla tvíhliða viðskipti landanna og styðja við beina fjárfestingu, ásamt því að efla fjármálaleg tengsl. Fjárhæð samningsins er 66 milljarðar króna eða 3,5 milljarðar kínverskra júana. Samningurinn gildir í þrjú ár og verður mögulegt að endurnýja hann að þeim tíma liðnum.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569 9600.

Nr. 32/2013
30. september 2013

Til baka