logo-for-printing

23. ágúst 2013

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2013

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 7/2013 útgefinni 18. júlí sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. – 30. september 2013.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2013;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)

Sjá nánar: tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2013

 

Til baka