logo-for-printing

25. júlí 2013

Efnahagsreikningar innlánsstofnana

Seðlabanki Íslands hefur birt nýjar tölur um efnahag innlánsstofnana. Þar kemur fram að heildareignir innlánsstofnana námu 3.008,6 ma.kr. í lok júní 2013 og hækkuðu um 21 ma.kr. eða um 0,7% í mánuðinum. Af heildareignum námu innlendar eignir 2.583,3 ma.kr. og lækkuðu um 3 ma.kr. í mánuðinum eða um 0,1%. Erlendar eignir innlánsstofnana námu 425,3 ma.kr. og hækkuðu um 24 ma.kr. í júní eða um 6%.

Skuldir innlánsstofnana námu 2.482,0 ma.kr. í lok júní og hækkuðu um 23,3 ma.kr. í mánuðinum eða um 0,9%. Innlendar skuldir námu 2.346,4 ma.kr. og hækkuðu um 39,5 ma.kr. í mánuðinum. Erlendar skuldir innlánsstofnana námu 135,6 ma.kr. og lækkuðu um 16,1 ma.kr. í júní eða um 10,6%. Eigið fé innlánsstofnana nam 526,6 ma.kr. í lok júní og lækkaði um 2,4 ma.kr í júní eða um 0,4%.

Sjá nánar:
Tengill á hagtölur


Til baka