logo-for-printing

14. júní 2013

Heimsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá 4. til 14. júní 2013

Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum undir forystu Dariu Zakharovu lauk í dag tveggja vikna heimsókn sinni til Íslands. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir reglulega úttekt á efnahagslífi aðildarlanda sinna samkvæmt 4. grein Stofnsáttmála sjóðsins (e. Article IV).

Skýrsla um úttektina verður gefin út í kjölfar umræðu í framkvæmdastjórn sjóðsins. Heimsókn sendinefndarinnar tengist jafnframt eftirfylgni við efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins (e. Post-Program Monitoring) sem lauk í ágúst 2011. Sendinefndin átti fundi með stjórnvöldum, þingmönnum, fulltrúum háskóla, einkageirans og aðilum vinnumarkaðarins.

Álit sendinefndarinnar, þar sem greint er frá helstu niðurstöðum af viðræðum síðustu tveggja vikna, hefur verið birt á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og má finna hér að neðan ásamt lauslegri þýðingu á íslensku.

Sjá hér:

Statement by an IMF Mission to Iceland.pdf 

Sjá lauslega þýðingu hér:

Lokayfirlýsing sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 14. júní 2013.pdf

 

Til baka