logo-for-printing

18. apríl 2013

Tilkynning um dráttarvexti o.fl.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 3/2013 útgefinni 20. mars sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2013.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2013;

  • Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)
  • Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 4/2013 (pdf)

Til baka