logo-for-printing

25. febrúar 2013

Ritgerð um samband fjárfestingar og atvinnuleysis

Í röð rannsóknarritgerða Seðlabanka Íslands er komin út rannsóknarritgerð nr. 61, „Capital Investment and Equilibrium Unemployment“, eftir Jósef Sigurðsson.

Hagrannsóknir sýna að stöðugt og sterkt langtímasamband er á milli fjárfestingar og atvinnuleysis, þ.e. að lækkun atvinnuleysis fer saman við aukna fjárfestingu. Markmið greinarinnar er að varpa ljósi á þetta samband í fræðilegu samhengi. Byggt er líkan af vinnumarkaði þar sem tregða er í leit og pörun atvinnulausra við laus störf og því atvinnuleysi í jafnvægislausn líkansins. Í líkaninu ráða fyrirtæki til sín starfskrafta í tvennum tilgangi: til framleiðslu á neysluvörum annars vegar og til framleiðslu á vélum og tækjum hins vegar. Niðurstöður sýna að í líkaninu leiðir örari tækniþróun í framleiðslu á vélum og tækjum til tilfærslu starfsmanna milli atvinnugreina, aukinnar atvinnu í framleiðslu á vélum og tækjum, aukinnar fjármunamyndunar og lækkunar atvinnuleysis í jafnstöðu. Í líkaninu myndast því neikvætt langtímasamband á milli fjárfestingar og atvinnuleysis líkt og hagrannsóknir hafa varpað ljósi á.

Rannsóknarritgerðir Seðlabanka Íslands má nálgast hér: Rannsóknarritgerðir

Til baka