logo-for-printing

14. febrúar 2013

Fitch Ratings hækkar lánshæfismat ríkissjóðs

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur hækkað lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB frá BBB- og staðfest lánshæfismatið BBB+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt. Matsfyrirtækið hefur staðfest lánshæfismatið F3 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og hækkað landseinkunnina (e. Country Ceiling) í BBB frá BBB-. Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar.

Sjá hér frétt Fitch:

Iceland Fitch Press Release 14 Feb 2013.pdf

Til baka