logo-for-printing

07. febrúar 2013

Moody´s breytir horfum á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs

Matsfyrirtækið Moody‘s hefur í dag breytt horfunum á Baa3 lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands Baa3/P-3 fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar eru áfram óbreyttar.

Ákvörðun Moody‘s um að setja horfurnar aftur í stöðugar byggir á því dregið hefur úr þeirri áhættu sem fylgdi úrskurði EFTA-dómstólsins í janúar. Sá atburður leggst á sveif með öðrum jákvæðum þáttum í þróuninni á Íslandi síðastliðna 12 mánuði að mati fyrirtækisins.

Sjá hér álit Moody's : Moody's Investors Service: Rating Action: Moody's changes on Iceland's Baa3 rating to stable from negative .pdf

Til baka