logo-for-printing

05. febrúar 2013

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 21. desember 2012 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum

Alls bárust 68 tilboð að fjárhæð 41,3 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 25,2 milljónum evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 230 kr. fyrir hverja evru.

Lykiltölur  Alls  Ríkisverðbréf  Fjárfestingarleið 
 Fjöldi tilboða

 68

 14

54

 Heildarupphæð EUR

 41,3 m

 5,9 m

 35,4 m

 Tekin tilboð EUR       

 25,2 m

3,0 m 

 22,2 m

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 615 milljónir króna að nafnvirði. Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 5,8 milljarða króna í útboðunum tveimur.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur

Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 231 kr. fyrir hverja evru. Alls bárust 30 tilboð að fjárhæð 9,3 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 5,7 ma.kr. tekið.

Lykiltölur

Alls

Fjöldi tilboða

30

Heildarupphæð, ma.kr.

 9,3

Tekin tilboð, ma.kr.

 5,7

Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin 19. mars og 30. apríl 2013.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Nr. 2/2013
5. febrúar 2013

 

 

 

 

 

 

 

Til baka