logo-for-printing

25. júlí 2012

Útboðsáætlun ágúst - desember 2012

Stefnt er að samhliða útboðum á eftirfarandi dögum þar sem Seðlabanki Íslands kaupir erlendan gjaldeyri, annars vegar samkvæmt fjárfestingarleið og hins vegar í skiptum fyrir ríkisverðbréf. Á sömu dögum er jafnframt stefnt að útboðum þar sem bankinn býðst til að kaupa íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri.

29. ágúst 2012

3. október 2012 [i]

7. nóvember 2012

19. desember 2012

Seðlabankinn áskilur sér rétt til að fjölga eða fækka útboðsdögum frá því sem að ofan greinir.


Markmið útboðanna er að selja krónur til aðila sem eru tilbúnir að eiga þær í a.m.k. 5 ár með kaupum á ríkisverðbréfum eða fjárfestingum samkvæmt fjárfestingarleið sem kynnt var 18. nóvember 2011. Jafnframt gera útboðin fjárfestum kleift að selja krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Markmiðið með viðskiptunum er að auðvelda losun gjaldeyrishafta án þess að það valdi óstöðugleika í gengis- og peningamálum eða tefli fjármálastöðugleika í hættu. Aðgerðinni er einnig ætlað að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga úr endurfjármögnunarþörf á meðan losað er um gjaldeyrishöftin.

Útboðin ásamt skilmálum verða nánar auglýst síðar. Sé ekki annað tilkynnt sérstaklega rennur umsóknarfrestur um þátttöku í fjárfestingarleið út 14 virkum dögum fyrir hvert útboð.


Nr. 27/2012
25. júlí 2012

 


[i] Var áður áætlað 19. september 2012.

Til baka