logo-for-printing

21. maí 2012

Útboðsáætlun þriðja ársfjórðungs

Hinn 14. febrúar sl. var útboðsáætlun Seðlabanka Íslands á fyrri árshelmingi kynnt þar sem stefnt var að samhliða útboðum um kaup bankans á erlendum gjaldeyri, annars vegar samkvæmt fjárfestingarleið og hins vegar í skiptum fyrir ríkisverðbréf. Á sömu dögum var jafnframt stefnt að útboðum þar sem Seðlabanki Íslands bauðst til að kaupa íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri.

Útboðsdagar til loka þriðja ársfjórðungs hafa verið ákveðnir og gerir útboðsáætlunin ráð fyrir útboðum á eftirfarandi dögum:

20. júní 2012
29. ágúst 2012
19. september 2012

Seðlabankinn áskilur sér rétt til að fjölga eða fækka útboðsdögum frá því sem að ofan greinir.

Markmið útboðanna er að selja krónur til aðila sem eru tilbúnir að eiga þær í a.m.k. 5 ár með kaupum á ríkisverðbréfum eða fjárfestingu samkvæmt fjárfestingarleið sem kynnt var 18. nóvember 2011. Jafnframt gera útboðin fjárfestum kleift að selja krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Markmiðið með viðskiptunum er að auðvelda losun gjaldeyrishafta án þess að það valdi óstöðugleika í gengis- og peningamálum eða tefli fjármálastöðugleika í hættu. Aðgerðinni er einnig ætlað að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga úr endurfjármögnunarþörf á meðan losað er um gjaldeyrishöftin.

Útboðin ásamt skilmálum verða nánar auglýst síðar. Sé ekki annað tilkynnt sérstaklega rennur umsóknarfrestur um þátttöku í fjárfestingarleið út 14 virkum dögum fyrir útboð.

Nr. 18/2012
21. maí 2012

Til baka