logo-for-printing

23. apríl 2012

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 4/2012

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 3/2012 dagsettri 21. mars sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða því áfram 12,00% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2012.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2012:

• Vextir óverðtryggðra útlána hækka í 5,65% - (voru 5,40%)
• Vextir verðtryggðra útlána haldast óbreyttir og eru 3,75%
• Vextir af skaðabótakröfum hækka í 3,77% - (voru 3,60%)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. nr. 4/2012

 

Til baka