logo-for-printing

12. apríl 2012

Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur lokið reglubundnum umræðum um íslensk efnahagsmál

Hinn 6. apríl fór fram reglubundin umræða um stöðu og horfur í íslensku efnahagslífi (e. 2012 Article IV Consultation) í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Jafnframt fór fram umræða um eftirfylgniskýrslu sjóðsins í kjölfar þess að efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lauk í ágúst 2011 (e. Ex-post Evaluation). Sjóðurinn birti í dag fréttatilkynningu á heimasíðu sinni þar sem greint er frá þessu.

Sendinefnd sjóðsins var hér á landi til viðræðna við íslensk stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila í febrúar síðastliðnum.

Sjá hér fyrir neðan skýrslur og önnur gögn sem tengjast umræðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslensk efnahagsmál:

Iceland 2012 Article IV Consultation and First Post-Program Monitoring Discussion

Iceland Selected Issues Paper

Iceland Ex Post Evaluation of Exceptional Access Under the 2008 Stand-by Arrangement

Sjá einnig fréttatilkynningu á vef Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: Fréttatilkynning AGS

Til baka