logo-for-printing

27. mars 2012

Gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands framkvæmir húsleitir

Gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands, með aðstoð Embættis sérstaks saksóknara, framkvæmdi í morgun húsleitir á starfsstöðvum Samherja hf. í Reykjavík og á Akureyri. Aðgerðin er framkvæmd í tengslum við lögbundið rannsóknarhlutverk Seðlabanka Íslands á grundvelli laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, vegna gruns um brot gegn ákvæðum sömu laga.

Nr. 13/2012
27. mars 2012

Til baka