logo-for-printing

05. mars 2012

Katrín Ólafsdóttir skipuð í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað dr. Katrínu Ólafsdóttur fulltrúa í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.

Katrín er lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hún starfaði áður sem hagfræðingur hjá greiningardeild Landsbanka Íslands 2002-2003, forstöðumaður þjóðhagsspár hjá Þjóðhagsstofnun 1999-2002 og sem sérfræðingur á efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins 1991-1998. Katrín lauk doktorsprófi í vinnumarkaðshagfræði frá Cornell háskóla í New York árið 2009. Áður hafði hún lokið meistaranámi í hagfræði við sama skóla og AB gráðu í hagfræði með stærðfræði sem aukagrein við Occidental College í Los Angeles.

Katrín tekur sæti Anne Sibert í nefndinni.

Sjá hér upplýsingar um peningastefnunefnd

Til baka