logo-for-printing

20. janúar 2012

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2012

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands í desember sl.

Dráttarvextir verða því óbreyttir 11,75% fyrir tímabilið 1. - 29. febrúar 2012.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða einnig óbreyttir fyrir tímabilið 1. – 29. febrúar 2012 og verða því áfram eftirfarandi:

   • Vextir óverðtryggðra útlána 5,40%
   • Vextir verðtryggðra útlána 3,90%
   • Vextir af skaðabótakröfum 3,60%

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 1/2012

Til baka