logo-for-printing

09. ágúst 2011

Efnahagsyfirlit lífeyrissjóða

Hrein eign lífeyrissjóða var 2.021 ma.kr. í lok júní og hækkaði um 14,9 ma.kr. í mánuðinum eða um 0,7%.

Innlend verðbréfaeign nam 1.445 ma.kr og hækkaði um 6,4 ma.kr. Erlend verðbréfaeign lækkaði um 5,8 ma.kr og nam 490,8 ma.kr. í lok mánaðarins. Sjóður og bankainnstæður námu 151,1 ma.kr. og hækkuðu um 11,9 ma.kr. í lok júní.

Vert er að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.

 

Til baka