logo-for-printing

25. mars 2010

Uppkaup Seðlabanka Íslands á skuldabréfum ríkissjóðs

Seðlabanki Íslands („Seðlabankinn“), sem sér um lántökur fyrir Ríkissjóð Íslands („Ríkissjóð“), hefur á fyrsta ársfjórðungi 2010 keypt eftirfarandi skuldabréf að nafnvirði samtals:

81,1 m. evra í skuldabréfaflokki „Iceland’s Euro 1,000 million 3.75% issue due on 1 December 2011“ (ISIN XS0276687984) og
10 m. evra í skuldabréfaflokki „Iceland’s Euro 250 million 5.375% due on 10 April 2012“ (ISIN XS0145825179).

Kaupin voru framkvæmd eftir því sem tækifæri gáfust.

Framangreindir skuldabréfaflokkar nema um 87% af útistandandi skuldum ríkissjóðs í erlendri mynt og falla í gjalddaga á næstu tveimur árum. Seðlabankinn telur slík kaup eðlilega skulda- og lausafjárstýringu.

Ríkissjóður og Seðlabankinn íhuga frekari kaup skuldabréfa í þessum skuldabréfaflokkum. Ákvarðanir um frekari kaup yrðu teknar í hverju tilfelli fyrir sig með hliðsjón af markaðsaðstæðum og lausafjárstöðu Seðlabankans á hverjum tíma.

Heildareign Seðlabankans í þessum tveimur skuldabréfaflokkum er að nafnvirði:

105,5 m. evra í skuldabréfaflokki „Iceland’s Euro 1,000 million 3.75% issue due on 1 December 2011“ (ISIN XS0276687984) og
10 m. evra í skuldabréfaflokki „Iceland’s Euro 250 million 5.375% due on 10 April 2012“ (ISIN XS0145825179).


Til nánari upplýsinga er vísað á www.sedlabanki.is

 

Nr. 6/2010
25. mars 2010

Til baka