logo-for-printing

06. desember 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2004

 
Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2004 og til samanburðar í lok október 2004 og í lok desember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 4,9 milljarða króna í nóvember sl. í samræmi við áður kynnta áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína. Gjaldeyrisforði bankans jókst um 1 milljarð króna í mánuðinum og nam 67,1 milljarði króna í lok mánaðarins sem jafngildir 1.035 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Breytingar á stærð forðans skýrast af gjaldeyriskaupum, lánahreyfingum ríkissjóðs og gengisbreytingum. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 3% í nóvember.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 12,3 milljarða króna í nóvember og námu 32,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir minnkuðu aftur á móti um 1,5 milljarða króna og námu 9,7 milljörðum króna í mánaðarlok. 
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,1 milljörðum króna í nóvemberlok miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir minnkuðu um 3 milljarða króna í mánuðinum og námu 24,5 milljörðum króna í nóvemberlok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir jukust um 24,5 milljarða króna í mánuðinum.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana minnkuðu um 7,3 milljarða króna og námu 9,8 milljörðum króna í lok nóvember.  Þar af var greitt upp skuldabréf ásamt vöxtum af því að fjárhæð 5,8 milljörðum króna.

Grunnfé bankans lækkaði í nóvember um 2,9 milljarða króna og nam 35,7 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 44 kb)

Nr. 35/2004
6. desember 2004

Til baka